Guðmundur Friðjónsson. Ævi og störf # 72407

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1950
Condition
Binding
Guðmundur Friðjónsson. Ævi og störf. Þóroddur Guðmundsson frá Sandi tók saman og skáði.
Guðmundur Friðjónsson frá Sandi (1869 – 1944) var rithöfundur, skáld og bóndi sem bjó á bænum Sandi í Aðaldal í Suður-Þingeyjarsýslu. Hann er einna þekktastur fyrir sérstæðan ritstíl sinn.
Guðmundur fæddist að Silalæk í Aðaldal þar sem faðir hans, Friðjón Jónsson, var þá bóndi. Friðjón flutti síðar að Sandi og Guðmundur tók þar við búskap eftir föður sinn. Guðmundur gekk í Möðruvallaskóla árin 1891-1893 og og var það eina menntun hans. Upp frá því gerðist hann bóndi og umsvifamikill rithöfundur og stóð oft styr um hann í blöðum og tímaritum landsins. Í mörg ár hafði hann þann sið að hann tók sig upp frá búi sínu og flutti fyrirlestra um ýmis þjóðmál, hugmyndir sínar og hugsjónir. Bróðir Guðmundar, Sigurjón Friðjónsson, var einnig rithöfundur og skrifaði eins og bróðir hanns um mörg málefni sem ekki voru almennt í umræðunni og umdeild.


Fyrsta kvæðabók Guðmundar kom út árið 1902 og hét Úr heimahögum, en áður hafði hann birt smásögur, ljóð og sagnaþætti í Eimreiðinni. Næstu ár hélt Guðmundur uppteknum hætti, ritaði stutta þætti og sögur, orti kvæði og birti sumt af þessu hér og þar. Hann skrifaði ritgerðir um ýmis efni í blöð og tímarit. Árið 1904 gaf hann út safn af dýrasögum, Undir beru lofti. Árið 1907 kom út eina skáldsaga hans, Ólöf í Ási. Sagan hlaut misjafna dóma, þótti klúr og jafnvel ósiðleg á köflum. Guðmundur skrifaði ekki lengri sögur enda mun hann hafa átt örðugt með að taka fyrir ritverk sem kröfðust langrar aðsetu.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.