Hagyrðingur af Höfðaströnd # 90296
- Regular
- 19,500 kr
- Sale
- 19,500 kr
- Regular
- Unit Price
- per
Hagyrðingur af Höfðaströnd. Haraldur Hjálmarsson skáld frá Kambi. Síldareinkasölukantata Íslands með formála. Tvö útvarpserindi eftir Björn Dúason.
Af bókinni eru 73 eintök tölusett frá nr. 100 - 173 og er þetta eintak nr. 10. Hér undir ritar Björn Dúason nafn sitt.
Bókin er fjölrituð og inniheldur auk ljóða Haraldar Hjálmarssonar frá Kambi, tvö útvarpserindi sem Björn Dúason flutti um skáldið í útvarp landsmanna árið 1980.
Haraldur Hjálmarsson var fæddur á Hofi á Höfðaströnd 21. desember árið 1908, sonur Hjálmars Þorgilssonar og konu hans, Guðrúnar Magnúsdóttur. Haraldur missti móður sína á fyrsta ári. Hjálmar, faðir hans flutti að Kambi í Deildardal 1913 og þar ólst Haraldur upp og var jafnan kenndur við þann bæ. Á fullorðinsárum vann hann ýmis störf bæði í Skagafirði og á Siglufirði en síðast var hann bankaritari í Útvegsbankanum í Reykjavík. Haraldi þótti sopinn góður og fáir hafa ort jafnvel um kynni sín við Bakkus og hann.
Gott eintak í góðu skinnbandi. Áritað og tölusett, fágæti.