Hagyrðingamót 1993 að Hallormsstað # 12429
- Regular
- 1.900 kr
- Sale
- 1.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Hagyrðingamót 1993 að Hallormsstað. Ritstjórar Jóhann Guðmundsson og Ingi Heiðmar Jónsson.
Strax í rútunni hófst fjörið. 240 vísur komu á standinn sem hafður var í framglugga bílsins. T.d. þessi.
Margs er von á langri leið
að lenda hér í flokki slyngum
og setjast upp í svona reið
sem er full af hagyrðingum.
Bjargey Arnórsdóttir
Leiða þvingar lífsfylling
ljóða yngja þingin.
Höldum slyngir heims um bing,
hagyrðingahringinn.
Jói í Stapa.
Sveinbjörn Beinteinsson allsherjargoði kom í bílinn í Borgarnesi. Hann kvað.
Flytji þetta fólk með sér
fulla vísnaskjóðu.
Norðanlands og austan er
ekki von á góðu.
Strax í rútunni hófst fjörið. 240 vísur komu á standinn sem hafður var í framglugga bílsins. T.d. þessi.
Margs er von á langri leið
að lenda hér í flokki slyngum
og setjast upp í svona reið
sem er full af hagyrðingum.
Bjargey Arnórsdóttir
Leiða þvingar lífsfylling
ljóða yngja þingin.
Höldum slyngir heims um bing,
hagyrðingahringinn.
Jói í Stapa.
Sveinbjörn Beinteinsson allsherjargoði kom í bílinn í Borgarnesi. Hann kvað.
Flytji þetta fólk með sér
fulla vísnaskjóðu.
Norðanlands og austan er
ekki von á góðu.