Hamar og sigð # 49961

Regular
1.900 kr
Sale
1.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1930
Condition
Binding
Hamar og sigð. Ljóð eftir Sigurður Einarsson.


Yfirstéttarbókmenntir



Hann er fátækur, hún er rík.


Hann á varla brúklega flík,


með festu, ráðdeild og frómleiks-auð


hjá föður hennar sér vinnur brauð.





Hún er búin með hverskyns dyggð,


hæversku, fegurð, kærleik, tryggð,


helgu sakleysi og hjartans ró.


Hann er fagur sem Appolló.





Hún fer að elska hinn unga mann.


Óðar en varir finnur hann,


að þar muni hjarta hjarta þrá,


hefur upp bónorð og fær sitt ”já”.





Svo koma töfrar og tungskinsglóð,


titrandi hjörtu og kossaflóð.


Og loksins talar hér sál við sál


sælla elskenda fuglamál.





Þá kemst karlinn í þetta spil,


það verður grátur, en dugar ei til.


Hann fær ei kaup né hálfs dags grið.


Hún fær krampa og yfirlið.





Hún gengur alltaf í harmi og sorg.


Hann verður ríkur í framandi borg,


kemur svo heim og kaupir hús.


Karlinn og hann verða sáttir og dús.





Sálirnar dragast saman á ný.


Svo kemur veisla og fyllirí.


Þá verður miðnætti – himneskt húm.


Þau hátta bæði í nýkeypt rúm.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.