Háttalykill enn forni # 70353
- Regular
- 9.500 kr
- Sale
- 9.500 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Háttalykill enn forni. Jón Helgason prófessor og Anne Holtsmark.
Í Morgunblaðinu 1. maí 1954 fjallar Halldór Hermannsson um Háttalykill enn forna. Þar segir Halldór "Þessi Háttalykill hefur verið eignaður Rögnvaldi kala Orkneyjajarli og Halli Þórarinssyni, öðruvísi óþekktum íslending, en það verður kannske ekki fyllilega sannað. Það er einkennilegt í þessu kvæði, að tvær vísur sýna hér sama bragarhátt, ortar sín af hvorum. Fyrri vísan, eignuð Rögnvaldi, virðist stundum bera vott um þekkingu á útlendum skáldskap, en hin síðari, eignuð íslendingnum, sýni betri þekkingu á norrænu skáldamáli. Háttalykillinn mun vera ritaður um miðja 12. öld, en því miður vantar aftan af honum. Hann hefur óefað verið fyrirmynd að Háttatali Snorra. Prófessor Jón Helgason hefur gefið ágætar skýringar við textann, en prófessor Anné Holtsmark ritað um málið á kvæðinu og handritinu. Handritið, sem prentað er eftir, var skrifað af Jóni Rúgman á 17. öld, líklega eftir norsku handriti, sem þó ekki hefur verið frumrit, og hyggur próf. Holtsmark, að það handrit hafí verið frá suðaustur hluta Noregs."