Haustlitir # 12803

Regular
2.600 kr
Sale
2.600 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1964
Condition
Binding
Haustlitir. Kvæði eftir Maríu Bjarnadóttir.

María, var fædd 7. júní 1896 í Kárdalstungu í Vatnsdal, d. 11. mars 1976 í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Sigríður Hjálmarsdóttir (sonardóttir Bólu-Hjálmars) og Bjarni Jónsson ættaður af Akranesi.
Til Norðfjarðar kom María með bræðrum sínum, sem gerðu hér út á sumarvertíð, fyrst 1913; 17 ára gömul. Þar kynntist hún mannsefni sínu, Bjarna Antoníussyni.

Bjarni, var fæddur 17. ágúst 1888 á Arnhólsstöðum í Skriðdal, d. 27. maí 1975 á Norðfirði. Faðir hans var Antoníus Björnsson frá Álftafirði, lengst af bóndi á Arnhólsstöðum og Flögu í Skriðdal. Hann bjó um tíma á Kirkjubóli í Vöðlavík, og síðar á Norðfirði. Móðir hans var Guðrún Kristín Arnfinnsdóttir frá Arnhólsstöðum í Skriðdal.

María og Bjarni giftust 2. nóvember 1916 og hófu búskap sinn á Norðfirði. Bjarni var þá sjómaður. Á Norðfirði bjuggu þau að mestu leyti samfellt til 1930. Árið 1930 fluttu þau til Akureyrar og voru þar og á Siglufirði og Ólafsfirði um hríð. 1937 lá leiðin aftur austur. Í Mjóafirði bjuggu þau nokkur ár, fyrst á Krossi og síðan á reykjum. Þaðan fluttu þau aftur til Norðfjarðar árið 1944. Þau byggðu sér hús við Mýrargötu, þar sem þau bjuggu þau til þau fluttu til Reykjavíkur1960.

Báðir foreldrar Maríu voru skáldmælt. Árið 1964 gaf María út lítið ljóðakver, sem hún kallaði Haustliti. Elsta ljóðið þar sem getið er ártals er frá 1913, en það orti hún til móður sinnar. Í kverinu eru um 160 ljóð.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.