Heimspekisaga # 84457

Regular
3.900 kr
Sale
3.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1999
Condition
Binding
Heimspekisaga. Eftir Gunnar Skirbekk og Nils Gilje. Stefán Hjörleifsson þýddi.
Heimspekisaga er umfangsmikið verk. Bókin hefur verið gefin út á fjölda tungumála og er almennt talin eitt besta yfirlitsverk sem völ er á um sögu heimspekinnar. Útgáfa þessarar bókar markar nokkur tímamót hér á landi þar sem að ekkert heildstætt rit um sögu heimspekinnar hefur komið út á íslensku um áratuga skeið. Heimspekisaga er umfangsmikið yfirlitsrit vestrænnar heimspeki frá dögum Forn-Grikkja til samtímans, þar sem fram koma æviágrip helstu heimspekinga sögunnar, yfirlit yfir verk þeirra og framlag til heimspekisögunnar. Birtir eru umfangsmiklir kaflar úr frumtextum þessara heimspekinga og birtast sumir þeirra hér á íslensku í fyrsta sinn. Höfundar Heimspekisögu eru trúir þeirri meginreglu heimspekinnar að leggja fram spurningar frekar en veita endanleg svör. Lesandinn er leiddur í gegnum sögu heimspekinnar með áleitnum spurningum og gerð grein fyrir þeim mismunandi úrlausnarefnum sem heimspekingar Vesturlanda hafa lagt fram við ólíkum, áleitnum vandamálum tilverunnar. Aðalhöfundurinn, Gunnar Skirbekk, er sérfræðingur í vísindaheimspeki og heimspekisögu við háskólann í Bergen og er þekktur á alþjóðavettvangi fyrir heimspekistörf sín.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.