Héðinn, Bríet, Valdimar og Laufey # 65728
- Regular
- 2.900 kr
- Sale
- 2.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Héðinn, Bríet, Valdimar og Laufey. Fjölskylda og samtíð Héðins Valdimarssonar. Eftir Matthías Viðar Sæmundsson.
Fjölskyldusaga Héðins Valdimarssonar segir frá stórbrotnu fólki sem setti sterkan svip á samtíð sína. Raunsannar frásagnir úr daglegu lífi Reykvíkinga um aldamótin 1900 endurspegla andrúmsloft tímabilsins og varpa ljósi á hugsjónir þeirra Bríetar Bjarnhéðinsdóttur og Valdimars Ásmundssonar. Brugðið er upp líflegum myndum af skólasystkinum og samferðarmönnum systkinanna, Héðins og Laufeyjar, sagt frá baráttu Bríetar fyrir betri heimi og auknum réttindum kvenna, og ótrúlegum málaferlum Valdimars, frá upphafi stéttastjórnmála og fyrstu tilraunum verkafólks til að mynda samtök. Höfundur dregur fram heimildir sem ekki hafa áður birst á bók, þar á meðal dómsskjöl sem varpa óvæntu ljósi á lífið í Reykjavík á sögutíma verksins, og leiðir lesendur í eftirminnilega ferð inn í veröld sem var. (Bókatíðindi 2004).