Hella # 33912

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1990
Condition
Binding
Hella. Skáldsaga eftir Hallgrím Helgason.


Inn af krambúðarlegu afgreiðsluborði halla bólgin gólfin niður í hornin að kvistsmognum listum. Rakur svali ríkir í lofti og allir veggir eru þaktir skrautlegum plastöskjum á stærð við bækur en snúa allar kápunni fram. Þær prýða handmálaðar ljósmyndir í sterkum litum, þó mest beri á rauðu og eldrauðu, og eru gjarnan af einni aðalpersónu og skugga hennar. Yfir axlir og á milli læra getur síðan að líta minni og minni aukapersónur eftir því sem út í bakgrunninn líður þar sem ef til vill örlar á hraðbáti eða sportbíl í þann veg að springa í loft upp. Í hnipri frá þessum miklu atburðum situr boginn maður á bak við afgreiðsluborðið með hár yfir eyrum og gler fyrir augum, í þófkenndri brúnni ullarpeysu. Undan fingrum hans stendur lóðrétt reykjarsúla og hann situr líkt og hann orni sér við glóð hennar. Undir borðinu, fyrir framan hann, er stór öskubakki fullur af stubbum, hann drepur í þeim á líkan hátt og hann búi þá til og sé að safna. Og sjálfur hefur hann séð allar myndirnar í þessu safni sem hann skiptir í þrjá flokka.
Spennumyndir. Gamanmyndir. Góðar myndir. Getur spólað þær allar til baka í kollinum á sér og á skoðun sína við hverri, sé spurt. “Góð með matnum”, “Ekta löggumynd”, “Tólftomman af Top Gun”.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.