Hillingalönd # 61766
- Regular
- 9.500 kr
- Sale
- 9.500 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Hillingalönd. Tólf sögur eftir Guðrúnu H. Finnsdóttir.
Sögurnar eru: - Efni: Utangarðs ; Skriflabúðin ; Á vegamótum ; Enginn lifir sjálfum sér ; Undir útfall ; Bæjarprýðin ; Jólagjöfin ; Landskuld ; Að leikslokum ; Stríðsskuldir ; Jólaeldar ; Rödd hrópandans ; Bálför ; Í ljósaskiptunum.
Eins og hér sést eru sögurnar fjórtán.
Guðrún Helga Finnsdóttir fæddist 6. febrúar 1884 á Geirólfsstöðum í Skriðdal. Þar ólst hún upp við góðan kost til rúmlega sextán ára aldurs, en hélt þá til náms við Kvennaskólann á Akureyri. Þar kynntist hún Gísla Jónssyni, prentara, skáldi og ritstjóra, frá Háreksstöðum í Jökuldalsheiði og giftist honum árið 1902. Nokkrum mánuðum síðar fór hann vestur um haf í atvinnuleit og hún á eftir honum í júnímánuði 1904. Þau settust að í Winnipeg og áttu þar heima síðan og héldu stórt heimili sem var afar gestkvæmt. Þau eignuðust fimm börn og urðu bæði að leggja hart að sér til að halda risnu sinni. Af börnum þeirra komust fjögur til fullorðins ára, þrjár dætur og einn sonur, sem öll ílentust vestra, giftust inn í amerískar fjölskyldur og tóku upp þarlend ættarnöfn. Guðrún tók virkan þátt í félagslífi Vestur-Íslendinga, hélt fyrirlestra á mannamótum, sinnti safnaðarstarfi Únítarakirkjunnar, skrifaði greinar sem birtust í þarlendum blöðum, sat í stjórn og var heiðursfélagi a.m.k. þriggja félagasamtaka. Auk alls þessa samdi hún ríflega 30 smásögur.
Árið 1938 kom út í Reykjavík smásagnasafn Guðrúnar H. Finnsdóttur, Hillingalönd, og er það eina bókin sem hún sá eftir sig í lifanda lífi. Í þessu safni eru fjórtán sögur sem flestar höfðu áður birst í Tímariti Þjóðræknisfélagsins eða Heimskringlu. Var sögum hennar vel tekið og þóttu vel skrifaðar á gullaldarmáli. Að Guðrúnu látinni gaf eiginmaður hennar, Gísli Jónssson, út smásagnasafnið Dagshríðar spor sem kom út á Akureyri 1946, með tólf sögum, og fjórum árum seinna minningarritið Ferðalok sem kom út í Winnipeg. Í þeirri bók eru nokkrir fyrirlestrar og ræður Guðrúnar, m.a. erindi um E. Pauline Johnson, merka skáldkonu af Indjánaættum, og Clöru Barton sem var frumkvöðull að stofnun Rauða krossins. (www.skald.is).