Hin hvítu skip # 53351
- Regular
- 2.900 kr
- Sale
- 2.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Hin hvítu skip. Ljóð eftir Guðmund Böðvarsson.
Í 12. árg. Einreiðarinnar 22. tbl. er fjallað um Hin hvítu skip Guðmundar Böðvarssonar. Þar segir: Bókaútgáfan „Heimskringla" hefir nýlega gefið út nýja ljóðabók
eftir Guðmund bónda Böðvarsson
á Kirkjubóli á Hvitársíðu, er heitir
Hin hvítu skip. Tímaritið Eimreiðin kynti hann íslenskum lesendum
fyrir nokkrum árum, með kvæðum
er vöktu talsverða athygli, en fæstir
vissu þá hver maðurinn var. Fyrir
tæpum þrem árum gaf hann út
ljóðabókina Kysti mig sól. Fekk hún
hlýjar viðtökur og þóttust margir sjá
að þarna væri efnilegt ljóðskáld á
ferðinni. Það er óhætt að fullyrða,
að með hinni nýju bók efnir Guðmundur þær vonir — og betur til
— sem menn gerðu sjer um hann
eftir að hafa lesið fyrri bókina.
Hjer er um stórframför að ræða.
Guðmundur yrkir ekki aðeins altaf
vel heldur oftast nær ágætlega. Hin
hvitu skip færa nokkur afbragðskvæði, sem eru meðal hins allra
besta, er ort hefir verið á íslandi
á seinustu árum. Hjer er ekki rúm
til að rekja þetta nánar, en þó má
minnast á kvæði eins og Við hverfisteininn 1936, Fjarða-Björn, Eyrar-rós o. fl. — Það er sæmd íslenskri
bændastjett að enn skuli hún ala
upp menn eins og Guðmund Böðvarsson. Sem skáld lætur hann lítið yfir sjer, er heill og hreinn, þróttmikill með köflum en þó er eins og saknaðarstrengur titri i hörpu hans.
Hann yrkir af innri þörf, hefir fengið sönggáfuna í vöggugjöf, og hefir
ekki grafið hana i jörðu sem betur
fer.
Með þessari nýju bók hefir Guðmundur tekið sjer sæti á fremsta
bekk meðal íslenskra Ijóðskálda.