Hjá afa og ömmu # 81359

Regular
3.900 kr
Sale
3.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1960
Condition
Binding
Hjá afa og ömmu. Þórleifur Bjarnason segir frá.
Þórleifur fæddist hinn 30. janúar 1908 „í sveitabæ á svörtustu Hornströndum, alveg út við Hælavíkurbjarg“, eins og hann orðaði það sjálfur í viðtali við Gísla Jónsson í 8. hefti tímaritsins Heima er bezt 1978. Hann ólst þar upp hjá móðurforeldrum sínum, Guðna Kjartanssyni og Hjálmfríði Ísleifsdóttur. Lífsbaráttan var hörð, náttúruöflin óvægin og miskunnarlaus, sumrin stutt en veturnir langir. Oft lá snjór yfir öllu þótt aðeins væru fjórar vikur að sumri, og hálfrokkið í snæviþöktum og héluðum bænum. Leiðin upp í birtuna og kuldann lá um snjótröppur sem fjölgaði dag frá degi.


Það gekk á heyjaforðann svo draga varð úr gjöf handa fénu, sem bar auðsæ merki harðindanna. Umskiptin voru mikil þegar loksins voraði, jörðin bræddi af sér snjóinn, grasið kom grænt undan fönninni, róið var nætur og daga því að hrognkelsi og færafiskur veiddust undir bjarginu og senn var kominn tími eggsiga. Þá flykktist að fjöldi karla og kvenna að austan og vestan til þess að draga feng í eigin bú. Þá urðu hinar afskekktu víkur Hornstranda miðja alheimsins. (www.mbl.is)

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.