"Hlustaðu á þína innri rödd" # 87838

Regular
1.900 kr
Sale
1.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
2007
Condition
Binding
"Hlustaðu á þína innri rödd". Kvennaframboð í Reykjavík og Kvennalisti 1982-1987. Kristín Jónsdóttir tók saman. Ritstjórar Erla Hulda Halldórsdóttir og Ragnheiður Kristjánsdóttir.
Sérframboð kvenna í upphafi níunda áratugar síðustu aldar mörkuðu tímamót í íslenskri stjórnmálasögu. Þau voru afsprengi samfélagslegra breytinga og megnrar óánægju fjölda kvenna sem taldi hin hefðbundnu stjórnmálaöfl hvorki hlusta á konur né vinna að hagsmunum þeirra eða samfélagslegum umbótum.

Í bókinni er fjallað um tilurð Kvennaframboðs í Reykjavík árið 1982 og Kvennalista 1983. Kristín Jónsdóttir skoðar samfélagslegan og fræðilegan bakgrunn framboðanna, ræðir hugmyndafræði og stjórnmálastarf þeirra, viðbrögð við þeim og innri átök. Þótt rannsókn Kristínar nái fyrst og fremst til ársins 1987, þegar Kvennalistinn stóð á hátindi ferils síns, ræðir hún í eftirmála þann hugmyndafræðilega ágreining sem kom upp um 1990 og leiddi að lokum til þess að Kvennalistinn hætti stjórnmálastarfi. Kristín var sjálf þátttakandi í kvennaframboðunum.

Sýn hennar á viðfangsefnið er því í senn persónuleg og fræðileg.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.