Hnúkaþeyr # 55023

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Höfundur
Date
1991
Condition
Binding
Hnúkaþeyr. Ljóð eftir Friðbert Pétursson.

Friðbert var fæddur á Laugum í Súgandafirði. Foreldrar hans voru hjónin Kristjana Friðbertsdóttir og Pétur Sveinbjörnsson. Friðbert ólst upp í foreldrahúsum og fór snemma að taka til hendi við öll venjuleg störf eins og venja var. En hugur hans hneigðist fyrst og fremst til búskapar. Hann hélt til Hvanneyrar og útskrifaðist þaðan sem búfræðingur 1931 og hóf árið eftir búskap í Botni. Friðbert og eiginkona hans Kristjana Jónsdóttir bjuggu þar allt til 1984 er þau fluttu á Suðureyri.
Friðbert reyndist mikill og farsæll bóndi eins og býli hans bar jafnan vott um. En áhuginn beindist ekki bara að eigin býli. Hann hafði ríkan áhuga á öllum félagsmálum, og þá ekki síst á félagsmálum bænda. Friðbert var sérlega mikilhæfur félagsmaður, enda hlóðust á hann störf á því sviði, og þar kom að hann gerðist einn af helstu forystumönnum vestfirskra bænda og var það um langt skeið. Hann átti sæti í hreppsnefnd um árabil, var formaður Búnaðarfélags Suðureyrarhrepps í áratugi svo og Nautgriparæktarfélags Skutulsfjarðar og nærsveita og Sauðfjárræktarfélags Súgfirðinga. Ennfremur átti hann sæti í stjórn Ræktunarfélags Vestur-Ísafjarðarsýslu og sat í stjórn Búnaðarsambands Vestfjarða frá 1966­1987. Þá var Friðbert fulltrúi á Búnaðarþingi 1967­1978 og um nokkurt skeið varastéttarsambandsfulltrúi.
Friðbert var vel skáldmæltur, en ræktaði ekki að marki þann eiginleika fyrr en á efri árum að hann tók að yrkja ljóð í stað jarðar. Gaf hann út tvær ljóðabækur, Fallin lauf 1985 og Hnúkaþey 1990. Þarna er vel ort og efnisval og efnistök höfundar opinbera hugðarefni hans á ævikvöldi. Skáld segir oft meira i einni setningu en hinn óskáldlegi á langri ævi. (Úr minningargrein um Friðbert Pétursson)

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.