Hólaborg # 23483
- Regular
- 2.900 kr
- Sale
- 2.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Hólaborg. Ævintýrið um langspil landsins. Saga eftir Bjarna Valtý Guðjónsson.
Heiðardalur hefur ekki verið numinn til búsetu þegar þúsund ár eru að verða liðin frá miðri landnámstíð.
Í dalnum stendur náttúruundrið óviðjafnanlega, Hólaborg, höfuðaðsetur huldufólksætta þeirra er í dalnum búa. Tröllin byggja einnig heiðar og hamra og vita furðulega margt, en þrátt fyrir stærð sína og afl gera þau engum mein þó vitað sé að ekki skorti þau löngun til að efla valdaaðstöðu sína vítt um dali og grundir.
Systkinin Hrólfur og Hildur undirbúa fjallaför ásamt jafnaldra sínum, Bjössa, og er ætlunin að veita viðtöku heillagrip þeim er heitinn hafði verið afa og ömmu þeirra systkinanna fimmtíu árum fyrr þegar amma vann það líknarverk að sitja yfir huldukonu nóttina fyrir brúðkaup sitt.
Og systkinin hefja ferðina ásamt besta vini sínum bjartsýn og fagnandi, vitandi um ábyrgð sína og meðfylgjandi hættur, sem að vísu sýnast alls ekki háskalegar þegar á reynir. Þau lenda í miklum ævintýrum þetta kvöld og næstu nótt.