Hræranlegar hátíðir # 90512
- Regular
- 3,900 kr
- Sale
- 3,900 kr
- Regular
- Unit Price
- per
Hræranlegar hátíðir. Gleðskapur og guðsótti kringum páska. Eftir Árna Björnsson þjóðháttafræðing.
Bókin fjallar um þá kristilegu hátíðisdaga þegar minnst er pínu Krists, upprisu og himnaför, en þessir dagar miðast við tunglárið og eiga sér því ekki fastan stað á almanakinu. Í bókinni er
fyrst fjallað um ærslatímann í upphafi föstu, bolludag, sprengidag og öskudag, þá dymbilvikuna með pálmadegi, skírdegi og langafrjádegi, og síðan upprisuhátíðina, gangdaga, himnaför, hvítasunnu og þrenningarhátíð.