Hrakfallabálkurinn # 6277

Regular
1.900 kr
Sale
1.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1982
Condition
Binding
Hrakfallabálkurinn. Viðtöl við Plum kaupmann í Ólafsvík.



"Jakob Plum hafði Ólafsvík, góðlyndur maður og einfaldur og eigi mjög heppinn í kaupförum", segir Espólín um þann mann, sem er söguhetja þessarar bókar.



Jakob Plum kom til Ólafsvíkur 17 ára sem lærlingur við konungsverslunina dönsku og tók þar við kaupmennsku, þegar einokun var aflétt 1788. Hann er þannig einn fyrsti, ef ekki fyrsti "fríhöndlarinn" á Íslandi, eins og þeir nefndust sem hófu frjálsa verslun í landinu á eigin spýtur.



Plum gaf út tvær bækur, þar sem hann rekur verslunarsögu sína og mannraunir á sjó og landi, segir frá kynnum sínum af Íslendingum og lýsir sóknum þeim, sem hann var kunnugastur: Ingjaldshóls- og Fróðársóknum á Snæfellsnesi.



Á grundvelli þessara heimilda hefur Einar Bragi sett á svið viðtöl við Jakob Plum, sem eru í senn hraðstreym skemmtilesning, eftirminnileg mannlýsing og áreiðanleg frásaga af lífi íslensks fólks og skiptum þess við erlent vald, allt yljað hlýrri kímni og samúð með aðkrepptu mannlífi.



Bókin er prýdd myndum frá Íslandi og Kaupmannahöfn á þessum tíma, svo lesandinn á auðvelt með að hverfa um stund tvær aldir aftur í tímann og lifa lífi fólks sem þá var uppi.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.