Hrynjandi íslenskrar tungu (Drög) # 88710

Regular
9.500 kr
Sale
9.500 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík. Steindór Gunnarsson, 1924.
Date
Condition
Binding

Hrynjandi íslenskrar tungu (Drög). Eftir Sigurð Kristófer Pétursson.


Sigurður Kristófer Pétursson var sjálfmenntaður fræðimaður og þýðandi, en hann þýddi t.d. Hávamál Indíalands: Bhagavad-Gíta. Hann var mikill málamaður, las norðurlandamálin öll, og talaði og ritaði dönsku. Ensku og þýsku nam hann svo vel að hann gat lesið vísindarit á þeim málum, og talaði esperanto og orti á því máli. Sigurður Kristófer er þekktastur fyrir bók sína: Hrynjandi íslenskrar tungu, en hún útskýrir með mjög sérstökum hætti hvernig skrifa má fallegra óbundið íslenskt mál. Sigurður Nordal las handritið yfir og benti á margt sem betur mátti fara.


Þegar Sigurður Kristófer var 14 vetra varð hann holdsveikur. Tveimur vetrum síðar, árið 1898, tók Laugarnesspítali til starfa. Fékk hann þá vist þar og var hann einn af fyrstu sjúklingum sem þangað fluttust. Dvaldist hann þar til dauðadags. Sjúkdómur hans var hin svonefnda slétta holdsveiki. Ekki varð séð að hún ágerðist hið minnsta seinni árin. það sem mest þjáði hann var meltingarsjúkdómur, en ekki holdsveiki. Sjúkdómur þessi ágerðist meir og meir, þar til Kristófer var skorinn upp haustið 1923. Batnaði þá nokkuð um hríð, en síðan sótti í sama horf. Sigurður lést árið 1925. Vann hann þá sem ákafast að bók sinni Hrynjandi íslenskrar tungu, og undi sér engrar hvíldar.


Sumir töldu að Sigurður ætti skilið doktorsnafnbót fyrir kenningu sína en hann svaraði því til að sér nægði sá titill, sem ekki yrði af sér tekinn: Sjúklingur í Laugarnesspítala.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.