Húnvetnskt bros í augum # 82842

Regular
3.900 kr
Sale
3.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Hlín Stefánsdóttir
Date
2002
Condition
Binding
Húnvetnskt bros í augum. Ljóð eftir Rögnvald Rögnvaldsson.
Rögnvaldur var fæddur að Litlu-Þverá í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu 21. október 1912, en hann lést á Akureyri í nóvember árið 1987. Bókin var gefin út í tilefni af 90 ára árstíðar Rögnvaldar. Rögnvaldur bjó lengst af á Akureyri eða frá árinu 1949. Hann fékkst mikið við verslunarstörf, rak m.a. ásamt konu sinni barnafataverslunina Hlín og Tóbaksbúðina, en jafnframt starfaði hann sem eftirlitsmaður með bæjarsalernunum sem voru til húsa undir kirkjutröppunum auk þess að selja þar sælgæti og tóbak. "Þarna undir kirkjutröppunum skapaðist merkileg stemning. Þar var afar gestkvæmt. Rögnvaldur var skemmtilegur maður og margir litu við hjá honum reglulega til að eiga við hann orðaskipti og heyra nýjustu vísurnar. Þarna rakst maður á landsþekkta hagyrðinga og skáld, þangað komu alþingismenn og forstjórar, blaðamenn og rithöfundar, sjómenn, verkamenn og bændur og var enginn greinarmunur gerður á stéttum Þar sem Rögnvaldur réð ríkjum ríkti fullkomin jafnaðarmennska," segir í formála Ragnars Inga Aðalsteinssonar frá Vaðbrekku. "Sjoppan undir kirkjutröppunum var griðastaður sem margir litu á sem eins konar annað heimili." Rögnvaldur gerðist síðar húsvörður við Ráðhúsið á Akureyri og hélt því starfi uns hann fór á eftirlaun.
Húnvetnskt bros er eina bókin sem ut kom með kveðskap Rögnavaldar Rögnvaldssonar.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.