Hvar endar maður? # 67242
- Regular
- 1.900 kr
- Sale
- 1.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Hvar endar maður? Ljóð eftir Jónas Þorbjarnarson.
Hér fylgir lesandi ljóðmælanda í ferðum hans um landið. Í einu ljóðinu skýtur upp kolli ógnvænleg reynsla úr bernsku, sagt er frá dvöl á Ítalíu, vináttu, ást og sorgum, og í sumum ljóðanna eru dregnar upp augnabliksmyndir sem fylgja út í daginn. Ljóð Jónasar eru ekki átakamikil en fegurð eða ógn augnabliksins stendur lesanda ljóslifandi fyrir sjónum. Hér er á ferð nútímakveðskapur líkt og í fyrri verkum höfundar, en þetta er sjöunda ljóðabók hans. (Bókatíðindi 2005).
Grótta
Áreiti frá kríunni
og konum að spóka sig en það er
allt öðruvísi, þær gera ekki árás
þótt komi reyndar mjög nálægt
er við mætumst
höggfæri satt að segja
en í mesta lagi gjóað til mín auga
ég bægi þeim frá með hendinni
kríunum, þær koma aftur
þær misskilja mig illilega
og hafa alltaf gert
í samanburði við kríur
virðast konurnar meinleysisgrey
en þeirra áreiti ristir samt ólíkt dýpra
og stafar ekki af misskilningi