Hvar sem ég verð # 83751
- Regular
- 4.900 kr
- Sale
- 4.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Hvar sem ég verð. Ljóð eftir Ingibjörgu Haraldsdóttir.
Nú eru átta ár liðin síðan Ingibjörg sendi frá sér ljóðabókina Höfuð konunnar sem á sínum tíma hlaut afburða dóma gagnrýnenda og hlýjar viðtökur lesenda. Í þessari sjöttu ljóðabók Ingibjargar er ort um hverfulleika lífsins, grimmd þess og óbilgirni, sjálfa lífshvötina andspænis tortímingunni og löngu liðna tíð í miðri þeirri andrá sem var að líða. Áhrifamikið og heilsteypt verk eins af ágætustu ljóðskáldum okkar. ( Bókatíðindi 2002).
Konan í speglinum
Konan í speglinum
vindur upp á sig
snýr baki í mig
þenur herðablöðin
blakar þeim hægt
hefst á loft
flýgur
upp og til hægri
út úr myndinni
ofurhægt
það síðasta sem ég sé
er skórinn
á vinstra fæti