Hvítir vængir # 73650
- Regular
- 3.900 kr
- Sale
- 3.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Hvítir vængir. Sögur, æfintýri og ljóð eftir Evu Hjálmarsdóttur.
Eva Hjálmarsdóttir fæddist í Stakkahlíð í Loðmundarfirði 16. nóvember árið 1905. Um 10 ára aldur veiktist hún af flogaveiki og heilsan versnaði með árunum. Næstum óslitið dvaldi hún á sjúkrahúsum hér og erlendis og langtímum var hún rúmföst. Eva var í Skagafirði um 1930, hún andaðist í Víðihlíð 13. júlí 1962.
Eva hóf ung að fást við ritstörf og mun hún hafa samið mestan hluta efnis í bókinni Hvítum vængjum á árunum 1917-1922 þegar hún var á aldrinum 12-17 ára. Hún skrifaði bernskuminningar, gamansögur, ævintýri, ljóð og sögur og fékk birt efni í tímaritum, eins og Eimreiðinni, Jörð og Stígandi. Þá ritaði hún pistla um drauma og dulrænar frásagnir í Vísi um hríð. Auk Hvítra vængja send hún frá sér bækurnar Það er gaman að lifa (1947) Paradís bernsku minnar (1948) Margt er smátt í vettling manns (1952) sem hún gaf út á eigin kostnað og Á dularvegum (1956).