Jakob Gunnlögsson in memoriam # 14976
- Regular
- 6.900 kr
- Sale
- 6.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Author
—
Location
Kaupmannahöfn
Date
1946
Condition
—
Binding
—
Jakob Gunnlögsson in memoriam.
Gefið út í tilefni 50 ára afmælis fyrirtækisins Jakob Gunnlögsson & Co. A/S.
Í Austurlandi 1.árg. 1907-1908. 11. tbl. er fjallað um Jakob Gunnlögsson. Þar segir.
Jakob Gunnlögsson er fæddur á Skagaströnd í Húnavatnssýslu 4. ágúst 1857. Foreldrar hans
voru Gunnlögur Guttormsson, Guðmundssonar sýslumanns frá Krossavík,
og kona hans Margrét Halldórsdóttir prófasts frá Melstað, systir Daníels
prófast sem var á Hólmum.
Tveggja ára gamall misti Jakob föður sinn og fluttist skömmu síðar
með móðir sinni að Stóra-Eyrarlandi í Eyjafirði.
17 ára gamall réðist hann verzlunarmaður hjá Gránufélaginu á
Vestdalseyri við Seyðisfjörð, og var við þá verzlun í 9 ár, en síðustu
árin þar var hann þó á vetrum í Kaupmannahöfn á skrifstofu Gránufélagsins
þar.
Árið 1883 varð hann verzlunarstjóri Gránufélagsins á Raufarhöfn,
og hafði þann starfa á hendi þar til haustið 1893, að hann sigldi til
Kaupmannahafnar og tók að sér umboðssölustörf fyrir íslenzka kaupmenn.
Hefir hann síðan bæði keypt og selt vörur fyrir þá erlendis. Umboðsverzlun
hans hefir síðan stöðugt aukist ár frá ári, og hefir hann nú einhverja
stærstu umboðsverzlun, sem rekin er við Ísland.
Jakob Gunnlögsson kvæntist 1883 danskri konu, og verður silfurbrúðkaup
þeirra hjóna næsta ár ef þau lifa.
Þegar Jakob Gunnlögsson var á fermingaraldri mun hann hafa notið
tilsagnar hjá Jóhannesi heitnum Halldórssyni móðurbróður sínum á
Akureyri og lært að skrifa hjá honum; enda varð hann, eins og frændur
hans fleiri, ágætur skrifari. Hann skrifaði svo fagra og fjölbreytta hönd,
að óhætt má segja, að enginn verzlunarmaður á íslandi tekur honum
fram, og stóð hann jafnfætis Gröndal og öðrum snillingum í því að geta
ritað fagurt og fjölbreytilega. Meðan Jakob gaf sig við skriftum á verzlunarskrifstofum
var hann svo mikill afkastamaður í allri bókfærzlu og
reikningaafgreiðslu að honum var viðbrugðið, og þótti þar fullkominn
tveggja manna maki.