Jarðhitabók # 85260
- Regular
- 6.900 kr
- Sale
- 6.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Jarðhitabók. Eðli og nýting auðlindar. Guðmundur Pálmason tók saman.
Jarðhitabók Guðmundar Pálmasonar er í senn fræðirit og menningarsöguleg heimild við hæfi fróðleiksfúsra lesenda. Rakin er framvinda jarðhitarannsókna hér á landi og sagt frá þeim er ruddu þar braut. Fjallað er um uppruna og eðli jarðhitans, vinnslu hans og margvísleg not af honum í íslensku þjóðlífi. Lagt er mat á það hversu varanleg auðlind jarðhitinn sé. Þá er vikið að áhrifum nýtingar á umhverfið og rætt um nauðsynlega vernd jarðhitafyrirbæra. Loks er annáll ýmissa atburða sem tengjast rannsóknum og nýtingu jarðhita allt frá fyrstu öldum Íslandsbyggðar. Höfundur veitir lesendum fræðilega sýn á þá miklu auðsuppsprettu sem jarðhitinn er og skýrir efnið með fjölda dæma, teikninga og ljósmynda. Þetta er grundvallarrit um eðli jarðhita og nýtingu hans hér á landi.
Höfundurinn vann m.a. að rannsóknum á gerð jarðskorpunnar undir Íslandi. Þær skýrðu megindrætti í jarðskorpu landsins og gliðnunarbeltum landrekshryggja og öfluðu honum víðtækrar viðurkenningar á alþjóðavettvangi. Undir forustu hans urðu miklar framfarir í rannsóknum og nýtingu jarðhita hér á landi sem gerðu Jarðhitadeildina að einu fremsta þekkingarsetri heims á sviði jarðhitarannsókna. Með störfum sínum öðlaðist Guðmundur einstæða heildarsýn á eðli og nýtingu jarðhita sem hann miðlar lesendum í skýru máli í þessari bók.
Bókatíðindi.