Játningar Pushkins # 33961

Regular
1.900 kr
Sale
1.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1996
Condition
Binding
Játningar Pushkins. Þýðing Súsanna Svavarsdóttir.
Sú hættulega bók sem hér kemur fyrir sjónir lesenda undir heitinu Játningar Pushkins á sér langa sögu. Frá því að leynidagbækur Pushkins, sem hann mun hafa skráð á síðasta æviári sínu 1836-1837, komu í dagsljósið um það bil hundrað árum eftir dauða hans hafa þær verið á bannlista í heimalandi skáldsins. Sjálfur lagði hann blátt bann við því að þær kæmu fyrir sjónir samtímamanna sinna, enda er hér lýst öflugri reynslu en í flestum þeim játningabókum sem skrifaðar eru á okkar tímum, hver kynlífslýsingin rekur aðra og verður vart við annað jafnað en verk markagreifans de Sade, þar sem girndin braut af sér allar hömlur með áður óþekktum hætti í bókmenntasögunni. Forsaga þessarar bókar er allævintýraleg og rakin í skemmtilegum formála þar sem lýst er samskiptum upphaflega þýðandans og þess sem fylgdi útgáfunni úr hlaði á sínum tíma. Þýðingu á handriti Pushkins, sem skrifaði dagbækurnar á frönsku, var smyglað úr landi árið 1976 og síðan þá hafa þær verið gefnar út víða um heim. Samsetning þeirra er slík að engu er líkara en að Játningarnar séu skrifaðar eftir að líkami skáldsins var horfinn rotnuninni á vald enda læðist fljótlega að manni sá grunur að um fölsun sé að ræða og sá grunur, sem byggist öðru fremur á tilfinningu, gerir það að verkum að maður er hikandi að taka hér allt jafnalvarlega. Hér minnir raunar fátt á vinnubrögð dagbókarritarans sem skráir reynslu sína og hugsanir í lok hvers dags. Bygging verksins minnir að mörgu leyti fremur á formgerð í verki höfundar sem veit strax við upphaf skrifanna hvernig síðasta setningin mun líta út. Þannig er engu líkara en að ljóshærð örlögin hafi þegar hleypt af skoti úr byssu sinni áður en fyrsta setningin er skrifuð

Email me when this is available

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.