Jómsvíkinga saga # 77085
- Regular
- 2.900 kr
- Sale
- 2.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Author
—
Location
Reykjavík
Date
1969
Condition
—
Binding
—
Jómsvíkinga saga. Ólafur Halldórsson bjó til prentunar og ritar inngang.
Jómsvíkinga saga er íslensk fornsaga sem segir frá víkingum sem stofnuðu virkið Jómsborg, og komu þar á bræðralagi hermanna sem voru kallaðir Jómsvíkingar.
Jómsvíkingasaga var samin á Íslandi um 1200 og er til í nokkrum handritum, sem eru talsvert ólík hvert öðru, og hefur samband þeirra valdið fræðimönnum heilabrotum. Yfirleitt er talað um fimm gerðir sögunnar.
Sagan er oftast prentuð eftir elsta handritinu, AM 291 4to. Flateyjarbók hefur náskyldan texta. Handritin AM 510 4to, og Sthlm. perg. 4to nr. 7 eru um sumt frábrugðin, og sama er að segja um latneska þýðingu sem Arngrímur lærði gerði eftir handriti sem nú er glatað. Jómsvíkinga saga var einnig notuð í Ólafs sögu Tryggvasonar eftir Odd munk og Ólafs sögu Tryggvasonar hinni mestu. Allar þessar gerðir má rekja til sama frumtexta.