Þjóðtrú og þjóðsagnir # 76281

Regular
4,900 kr
Sale
4,900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Author
Location
Akureyri
Date
1977
Condition
Binding
Þjóðtrú og þjóðsagnir. Safnað hefir Oddur Björnsson. Jónas Jónasson bjó undir prentun. Önnur útgáfa, aukin. Steindór Steindórsson frá Hlöðum annaðist útgáfuna.
Þjóðsögur og safnir og margvíslegur alþýðlegur fróðleikur, sem myndast meðal alþýðu allra siðaðra þjóða og lifir oft og tíðum öldum saman óskrásettar á vörum hennar, er réttilega í hávegum hafður og þessari alþýðuauðlegð haldið á lofti og hún varðveitt vel af þjóðlegustu fróðleiks- og vísindamönnum þjóðanna. Árið 1908 kom út á Akureyri sérstætt safn þjóðsagna sem nefndist Þjóðtrú og þjóðsagnir. Oddur Björnsson prentmeistari hafði annast söfnum til þess og kostað útgáfuna, en síra Jónas Jónasson á Hrafnagili bjó safnið til prentunar og skrifaði merkan formála um þjóðtrú og þjóðsagnir og menningasögulegt gildi þeirra. Þjóðsagnasafn Odds Björnssonar er löngu uppseld, og hefir mikil og vaxandi eftirspurn verið eftir því, einkum hin síðari ár, enda er það næsta torfengið. Eigi alls fyrir löngu fannst í dóti Odds Björnssonar böggull með þjóðsagnahandritum, sem ljóst var að var frá hinni fyrstu söfnun hans. Sögumenn og skrásetjarar voru allmargir, þar á meðal Oddur sjálfur. En flestar sögurnar hafa þeir skrásett Benedikt Guðmundsson (1879-1919) kennari frá Hringveri á Tjörnesi og Theódór Friðriksson rithöfundur (1876-1948) á árunum 1907-1911. Augljóst er að síra Jónas hefir lesið handritið yfir, leiðrétt stafvillur vikið við orðalagi eftir því sem betur fór. Steindór Steindórsson frá Hlöðum hefur nú búið til prentunnar þessa nýju og auknu útgáfu af inu gagnmerka og skemmtilega þjóðsagnasafni Odds Björnssonar. (Káputexti).

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.