Kjarval. Málarinn sem fór sínar eigin leiðir # 82234

Regular
3.900 kr
Sale
3.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
2019
Condition
Binding
Kjarval. Málarinn sem fór sínar eigin leiðir. Eftir Margréti Tryggvadóttur.
Flestir þekkja nafn Kjarvals – málarans sem er svo frægur að heilt listasafn er nefnt eftir honum. En hvernig var líf hans? Hvenær byrjaði hann að teikna og mála? Af hverju er stundum sagt að hann hafi sýnt Íslendingum landið sitt á nýjan hátt og hvers vegna sagði hann stundum bara Gilligogg þegar hann var spurður erfiðra spurninga?


Hér segir Margrét Tryggvadóttir sögu Jóhannesar S. Kjarvals og varpar ljósi á bæði sérlundaðan mann og einstakan listamann. Fjöldi málverka er í bókinni, auk ljósmynda af fólki og fyrirbærum.


Margrét Tryggvadóttir hefur sent frá sér bækur af ýmsu tagi, meðal annars Skoðum myndlist og Íslandsbók barnanna. Báðar bækurnar hlutu Fjöruverðlaunin og sú síðarnefnda var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Barnabókaverðlauna Reykjavíkur.


Kjarval – Málarinn sem fór sínar eigin leiðir er skrifuð fyrir börn og unglinga en hentar ekki síður eldri lesendum sem vilja vita meira um Jóhannes S. Kjarval og íslenska myndlist.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.