Knattspyrufélagið Hörður 25 ára # 30816

Regular
4.900 kr
Sale
4.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Author
Location
Ísafirði
Date
1944
Condition
Binding
Knattspyrufélagið Hörður 25 ára. 1919 - 1944.

"Það var á vordögum 1919 sem 12 ungir menn komu saman í Sundstræti 41 á Ísafirði til að ræða stofnun knattspyrnufélags. Þeir höfðu áður sótt æfingar hjá Fótboltafélagi Ísafjarðar en fannst þörf á öðru félagi í bænum. Hlaut nýja félagið nafnið Knattspyrnufélagið Hörður og var fyrsta stjórnin skipuð Þórhalli Leóssyni formanni, Dagbjarti Sigurðssyni gjaldkera og Helga Guðmundssyni ritara.


Lengi vel hafði Hörður aðeins einn flokk fullorðinna en árið 1931 voru settir á stofn 2. og 3. flokkur og varð sá hópur pilta afar sigursæll er fram liðu stundir. Fram til 1933 var knattspyrna eina íþróttagreinin sem stunduð var innan félagsins en þá var stofnuð sérstök handknattleiksdeild stúlkna. Vorið 1937 gekkst Hörður fyrir námskeiði í frjálsum íþróttum og í kjölfarið eignaðist félagið fjölmarga snjalla frjálsíþróttamenn sem áttu Íslandsmet í sínum greinum og kepptu fyrir Íslands hönd á alþjóðavettvangi. Um og eftir 1940 var farið að stunda fimleikar og glímu innan vébanda félagins og um svipað leyti var farið að ræða stofnun skíðadeildar. Byggður var skíðaskáli í samvinnu við Skíðafélag Ísafjarðar og gjörbreyttist þá til hins betra öll aðstaða til að stunda skíðaíþróttina. Eignuðust Harðverjar marga afreksmenn á skíðum, konur og karla, sem urðu margfaldir Íslandsmeistarar og kepptu á alþjóðamótum, m.a. Ólympíuleikum."
http://www.safnis.is/is/heradsskjalasafnid-isafirdi/syningar/knattspyrnufelagid-hordur/.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.