Kormákseðli þjóðskáldsins # 90492

Regular
2,900 kr
Sale
2,900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík. Skrudda, 2025.
Date
Condition
Binding

 Kormákseðli þjóðskáldsins. Davíð Stefánsson frá Fagraskógi, vinkonur hans og ástkonur. Eftir Friðrik G. Olgeirsson.
Í ævisögu Davíðs Stefánssonar, Snert hörpu mína, sem út kom árið 2007 er lítið fjallað um náin samskipti hans við konur. Davíð var fámáll um einkalíf sitt og lengst af hefur lítið verið vitað með vissu um samskipti skáldsins við hitt kynið. Margt hefur þó verið sagt og skrifað um ástarmál Davíðs, oftar en ekki byggt á hæpnum forsendum.
Jafnvel eru til þeir einstaklingar sem gengið hafa svo langt að túlka sum ljóð hans með þeim hætti að þau endurspegli takmarkaðan áhuga hans á konum. Frásögnin í þessari bók sýnir að slíkar bollaleggingar eru ekki í takt við veruleikann.
Nú hafa sendibréf Davíðs til tveggja kvenna verið gerð opinber. Þau varpa ljósi á einkalíf skáldsins og sýna nýja hlið á „manninum Davíð.“ Frásögnin af ástamálum hans í þessari bók byggir að stórum hluta á þessum bréfum. En þótt Davíð ætti kærustur og ástkonur var hann einhleypur alla ævi. Mörgum hefur þótt undarlegt að „þessi gleði- og ástamaður“ yrði ein-setumaður sem aldrei festi ráð sitt. Hver var ástæðan? Var Kormákseðlinu um að kenna eins og Davíð ýjaði raunar að sjálfur? Svarið er að finna í þessari bók.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.