Kötlugosið 1918 # 78813
- Regular
- 19.500 kr
- Sale
- 19.500 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Kötlugosið 1918. Frásagnir úr Vík og Heiðardal í Mýrdal, Hjörleifshöfða, Skaftártungu, Álftaveri, Meðallandi og Síðu. Safnað hefir og samið Guðgeir Jóhannsson kennari í Vík.
Frásagnir sjónarvotta.
Kötlugosið 1918 stóð frá 12. oktober til 4. nóvember. Eru til tvær samtímalýsingar um það eftir Gísla Sveinsson, sýslumann, og Guðgeir Jóhannsson, kennara í Vík. Hlaupið kom snögglega og öllum að óvörum. Fólk varð að flýja bæi sína, bæði í Álftaveri og Meðallandi. Það olli miklum skemmdum á jörðum þar og fluttu allmargir ábúendur í burtu, en tvær jarðir í Álftaveri, Skálmarbæjarhraun og Sauðhúsnes komust ekki aftur í byggð. Öskufall varð mest í Skaftártungu og farga varð miklum hluta búfénaðar á öllu svæðinu vegna fóðurskorts. Í hlaupinu myndaðist Kötlutangi, sem eftir miðjan vetur mældist 2000 - 3000 faðma frá gömlu ströndinni suður af Hjörleifshöfða og varð þá syðsti tangi landsins, en síðan hefur hann að mestu eyðzt.