Kristin siðfræði í sögu og samtíð # 68465

Regular
4.900 kr
Sale
4.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
2004
Condition
Binding
Kristin siðfræði í sögu og samtíð. Boðorðin tíu og evangelísk-lúthersk guðfræði. Eftir Sigurjón Árna Eyjólfsson.


Bókin Kristin siðfræði í sögu og samtíð skiptist efnislega í þrjá meginhluta. Í fyrsta hlutanum er leitast við að finna kristinni siðfræði stað í hinni almennu siðfræðiumræðu sem túlkun á boðorðunum tíu. Auk þess er gefið stutt yfirlit yfir stöðu boðorðanna í ritningunni og í siðfræðilegri umræðu allt frá tímum fornkirkjunnar til vorra daga. Í beinu framhaldi af því er gefið yfirlit yfir túlkunarsögu ritningarinnar og loks leitast við að staðsetja kristna siðfræði innan almennrar siðfræðilegrar umræðu.


Í öðrum hluta bókarinnar er leitast við að sýna hvernig veröldin sem maðurinn lifir og starfar í er skilgreind í Gamla testamentinu, annars vegar í fyrsta boðorðinu og hins vegar í fyrri sköpunarsögu Fyrstu Mósebókar. Í boðskap Jesú er þessi hugsun útfærð nánar og þar á meðal í dæmisögunni um miskunnsama Samverjann. Í henni kristallast að vissu leyti inntak kristinnar siðfræði. Því er túlkunarsaga hennar rakin, meðal annars í kenningum íslenskra kennimanna.


Í þriðja hluta verksins er fjallað um annað og þriðja boðorðið þar sem tekist er á við hvað felst í því að maðurinn sé samstarfsmaður Guðs og fulltúi hans hér á jörðu. Sú umfjöllun er m.a. reifuð í tengslum við hugmyndir manna um Jesú sem fyrirmynd siðrænnar hegðunar.
(www.hib.is)

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.