Kuml og haugfé úr heiðnum sið á Íslandi # 35453

Regular
9.500 kr
Sale
9.500 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
2000
Condition
Binding
Kuml og haugfé úr heiðnum sið á Íslandi. Eftir Kristján Eldjárn.
Þetta er önnur útgáfa ritsins. Ritstjóri Adolf Friðriksson.
Fyrsta útgáfa þessa mikla verks kom út 1956, heimildarrit fornleifafræðinga um íslenskar víkingaaldarminjar og fróðleikslestur fyrir almenning. Bókinni var fádæma vel tekið, hún festi sig fljótt í sessi sem grundvallarrit um upphafssögu þjóðarinnar og hefur æ síðan verið nauðsynleg handbók og fræðirit hverjum þeim sem rannsakar fornmenningu Íslendinga. Í þessa nýju útgáfu hefur Adolf Friðriksson fornleifafræðingur aukið vitneskju um þau kuml sem fundist hafa frá því að bókin kom fyrst út og annarri nýrri vitneskju um viðfangsefni hennar. Hann hefur grandskoðað upphaflega textann, endurbætt með viðbótum og endurskoðað, þótt þær niðurstöður sem Kristján Eldjárn komst að fyrir tæpri hálfri öld standi enn óhaggaðar í öllum aðalatriðum. Bókina prýða um 400 myndir, ljósmyndir, teikningar og kort. Hún er gefin út í samvinnu við Fornleifastofnun og Þjóðminjasafnið. (bókatíðindi)

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.