Kvæðabók Jóns Trausta # 70264

Regular
3.900 kr
Sale
3.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1922
Condition
Binding
Kvæðabók Jóns Trausta.
Guðmundur Magnússon (12. febrúar 1873 – 18. nóvember 1918), þekktastur undir skáldaheitinu Jón Trausti, var íslenskur rithöfundur. Þekktustu skáldsögur hans eru Heiðarbýlið, Anna frá Stóruborg og Halla, en auk þeirra skrifaði hann fjölmargar smásögur og styttri skáldsögur.
Jón Trausti er fæddur á Rifi á Melrakkasléttu og ólst upp í fátækt. Foreldrar hans voru í húsmennsku þegar hann fæddist en þau voru Magnús Magnússon frá Daðastöðum í Núpasveit og Guðbjörg Guðmundsdóttir frá Sigurðarstöðum á Sléttu. Þau fluttu vorið 1873 að heiðarbýlinu Hrauntanga í Öxarfjarðarheiði. Faðir hans lést árið 1877 og var Jóni Trausta komið fyrir á bænum Skinnalóni þar sem hann dvaldist í fimm ár. Móðir hans giftist aftur og hóf búskap á jörðinni Núpskötlu við Rauðanúp. Þangað fór Jón Trausti 10 ára gamall og var þar fram yfir fermingu. Eftir það var hann fyrst í vinnumennsku en hóf svo prentnám hjá Skafta Jósefssyni ritstjóra blaðsins Austra á Seyðisfirði. Sumarið 1895 fór hann til Reykjavíkur og var við prentstörf í Ísafoldarprentsmiðju. Sumarið 1896 fór hann í ferðalag um Norðurland með Daniel Bruun. Jón Trausti fór svo til Kaupmannahafnar haustið 1896 og var þar í tvö ár í prentnámi. Sumarið 1898 kvæntist hann Guðrúnu Sigurðardóttur og flutti til Akureyrar en þau fluttu svo til Reykjavíkur árið 1899. Þau áttu kjördótturina Mörtu Magnúsdóttur.
Árið 1899 kom út fyrsta kvæðasafn hans, Heima og erlendis, með ljóðum sem flest voru ort á Kaupmannahafnarárum hans. Bókin fékk ekki góða dóma. Árið 1903 kom út önnur ljóðabók hans, Íslandsvísur, sem prýdd er myndum eftir hann sjálfan og Þórarinn B. Þorláksson listmálara. Í þeirri bók eru ljóðin Íslandsvísur, sem hefst á ljóðlínunni Ég vil elska mitt land, og Draumalandið, en þau ljóð hafa orðið vinsæl sönglög. Séra Bjarni Þorsteinsson samdi lag við Íslandsvísur árið 1903.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.