Kvæðasafn og sögur # 61240
- Regular
- 2.900 kr
- Sale
- 2.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Kvæðasafn og sögur 1976-2003. Smásögur og ljóð eftir Kristján Karlsson.
Hér birtist úrval kvæða úr kvæðabókum höfundar og einnig úrval smásagna. Kristján Karlsson er eitt frjóasta og frumlegasta ljóðskáld okkar í seinni tíð. Rætur hans spretta úr þingeyskri menningu en síðan forframast hann með langri dvöl í New York og víðar erlendis og sest síðan að í Reykjavík. Kristján er bókmenntafræðingur og hefur staðið að viðamikilli útgáfu bókmennta m.a. stærsta yfirlitsverki íslenskra ljóða og þýddra ljóða á íslenska tungu. Kvæði Kristjáns bera með sér að þar fer menntaður heimsmaður með rætur í íslenskri menningu. Hann skírskotar m.a. til myndlistar, menningarsögu, setninga úr skáldskap og samferðamanna sinna. Eru kvæðin bæði hefðbundin og nútímaleg í senn. Þannig renna fortíð og nútíð saman og frumleg kvæði ort fyrir framtíðina blasa við augum lesandans.
Sögur Kristjáns gerast í Bandaríkjunum og hér heima. Þær fjalla um mannlífið og kafa undir yfirborð þess. Voru sögurnar taldar til viðburðar í íslenskri smásagnagerð, svo sérstakar og nútímalegar þóttu þær. Þær hafa sannarlega staðist tímans tönn og verða lesendum sínum jafnan hugleiknar og minnisstæðar í senn.
(Bókatíðindi 2005)