Kvæði # 72792

Regular
3.900 kr
Sale
3.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1997
Condition
Binding
Kvæði eftir Karl Ísfeld.
Karl Ísfeld (8. nóvember 1906 – 27. september 1960) var blaðamaður, rithöfundur og mikilvirkur þýðandi. Þekktustu þýðingar eru goðsagnakvæðin finnsku, Kalevala, en auk þess þýddi hann: Kátir voru karlar og Ægisgata eftir John Steinbeck og Ævintýri góða dátans Svejks í heimsstyrjöldinni eftir Jaroslav Hasek. Ljóðabók hans, Svartar morgunfrúr, kom út árið 1946.


Karl Ísfeld var af þingeysku bergi brotinn, fæddur á Sandi í Aðaldal, systursonur skáldanna Sigurjóns og Guðmundar Friðjónssona. Móðir hans var Áslaug Friðjónsdóttir en faðir hans var Níels Lilhendahl, kaupmaður á Akureyri. Karl ólst upp víðar en á einum stað í Þingeyjarsýslu og Eyjafirði en settist tæplega tvítugur í fyrsta bekk Gagnfræðaskólans á Akureyri, sem varð menntaskóli á námsárum hans. Hann lauk stúdentsprófi frá MA árið 1932. Þá settist hann í norrænudeild háskólans; stundaði nám í þrjú ár, en lauk ekki prófi. Þá voru krepputímar á Íslandi og mörgum þröngur stakkur skorinn. Karl Ísfeld sneri sér þá að blaðamennsku, og varð hún aðalstarf hans upp frá því.


Karl Ísfeld var einn mikilvirkasti þýðandi óbundins máls á sínum tíma. Hann þýddi bækur af ýmsu tagi, frá reyfurum og til fremstu verka heimsbókmenntanna. Prentaðar þýðingar hans munu vera að minnsta kosti 30 en auk þess nokkrar óprentaðar. Merkustu ritin, sem fóru gegnum hendur hans til íslenskra lesenda, eru goðsagnakvæðin finnsku, Kalevala, mesta stórvirkið, sem Karl réðst í, tvö seinni bindin af Önnu Kareninu, Sagan um San Michele, eftir Axel Munthe (þýdd ásamt Haraldi Sigurðssyni), bækur John Steinbecks, Kátir voru karlar og Ægisgata og Ævintýri góða dátans Svejks í heimsstyrjöldinni eftir Jaroslav Hasek.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.