Kvæði eftir Höllu Lovísu Loftsdóttir # 58419
- Regular
- 3.900 kr
- Sale
- 3.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Kvæði eftir Höllu Lovísu Loftsdóttir. Þetta er eina bók Höllu Lovísu.
Halla Lovísa Loftsdóttir var fædd 12. júní 1886 að Stóra-Kollabæ í Fljótshlíð og ólst þar upp til fermingaraldurs. Hún giftist árið 1911 Ámunda Guðmundssyni bónda að Sandlæk í Gnúpverjahreppi, þar sem þau bjuggu næstu árin. Mann sinn missti hún 1918, en bjó áfram á Sandlæk til ársins 1931. Þá flutti hún til Reykjavíkur og átti þar heima síðan.
Halla byrjaði ung að fást við ljóðagerð og hafa birzt eftir hana kvæði í tímaritum. Hún var mikill náttúruunnandi og bjó yfir ríkri fegurðarþrá, ein og ljóð hennar og stökur sýna bezt. Í nokkrum þeirra má líka heyra óm þjóðkvæðisins - arfin góða frá rökkurstundum í foreldrahúsum.
Halla lifði ekki að sjá kvæði sín útgefin í bók. Hún andaðist 15. nóvember síðastliðinn (1975) og hafði þá rétt áður fengið að sjá þau í fyrstu próförk. (Káputexti.)