Kvæði eptir Bjarna Thórarensen # 64073
- Regular
- 9.500 kr
- Sale
- 9.500 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Kvæði eptir Bjarna Thórarensen.
Bjarni fæddist á Brautarholti á Kjalarnesi. Móðir Bjarna var Steinunn, dóttir Bjarna Pálssonar landlæknis og faðir hans Vigfús Þórarinsson. Vigfús varð sýslumaður í Rangárvallasýslu 1789 og sat á Hlíðarenda í Fljótshlíð og er Bjarni alinn þar upp. Hann lærði hjá einkakennurum undir stúdentspróf og lauk því 15 ára.
Bjarni sigldi síðan til Kaupmannahafnar og lauk lagaprófi frá Hafnarháskóla er hann stóð á tvítugu. Bjarni mun hafa hlustað á einhverja af þeim fyrirlestrum sem Henrich Steffens hélt í Kaupmannahöfn 1802-1803 um rómantísku stefnuna og hann hreifst af skáldum er ortu í hennar anda, svo sem danska skáldinu Adam Oehlenschlager og þýska skáldinu Friedrich Schiller. Bjarni sneri til Íslands 1811 og varð nokkru síðar dómari í Landsyfirréttinum. Eftir nokkrar raunir í kvennamálum kvæntist hann Hildi, dóttur Boga Benediktssonar úr Hrappsey.
Bjarni kom að stofnun Fjallvegafélagsins árið 1831 sem hafði það að markmiði að bæta samgöngur á Íslandi. Bjarni var skipaður amtmaður fyrir í Norður- og austuramtinu árið 1833. Flutti hann þá að Möðruvöllum í Hörgárdal og bjó þar til dauðadags og þar er hann einnig grafinn.