Kvæði og stökur Eiríks frá Réttarholti # 63448
- Regular
- 6.900 kr
- Sale
- 6.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Kvæði og stökur eftir Eirík Einarsson, Réttarholti Reykjavík.
Eina bók Eiríks Einarssonar frá Réttarholti.
Eiríkur Einarsson var fæddur að Suður-Hvammi í Mýrdal árið 1891. Foreldrar hans voru hjónin Ingveldur Eiríksdóttir og Einar Þorsteinsson. Faðir Eiriks drukknaði við Landeyjarsand árið 1893. Eiríkur naut ekki menntunar umfram banaskóla en bjó að ágætis gáfum. Hann var glöggur reikningsmaður og slyngur íslenskumaður. Eiríkur var hagsýnn og harðduglegur þegar hann naut sín heilsunnar vegna. Hann lærði skósmíði hjá Sveini Þorlákssyni í Vík en stundaði þó aldrei skósmíðar að aðalatvinnu. Hann var góður sjómaður, fiskinn og eftirsóttur í skipsrúm. Hann var strangur og kröfuharður til sjálfs síns og eins við aðra, gekk fast eftir að staðið væri við gefin loforð, var maður orðheldin og stóðu loforð hans sem stafur á bók. Hann var um tíma rafstöðvarstjóri á Bíldudal og þar kynntist hann konu sinni Sigríði Benediktu Kristjánsdóttur. Búskapur þeirra hjóna var um skeið á Vatnsleysuströnd eð lengst og síðast í Réttarholti í Reykjavík og bjuggu þau þar í um 40 ár. Þau Sigríður eignuðust 15 dætur og má nærri um geta þvílíkan fjölda afkomenda sem eru frá þeim komin. Eiríkur lést í Reykjavík árið 1973.
Yndisleikinn ástarbál
einatt tendrað hefur
tilfinninga talað mál
tækifærin gefur.