Kveðjubros # 56559
- Regular
- 2.900 kr
- Sale
- 2.900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Kveðjubros. Ljóð eftir Guðrúnu Guðmundsdóttur frá Melgerði. Sigurbjörn Á. Gíslason ritar formála.
Guðrún Guðmundsdóttir frá Melgerði í Fellshreppi á Ströndum ólst upp við mikla fátækt, en foreldrar hennar voru jafna í húsmennsku. Síðar flutti hún á Hvammstanga þar sem hún gekk í hjónaband. Hún var lömuð í þrjá tugi ára og rúmföst. Æxli í höfði gerðu það að verkum að hún varð að fara í mikla skurðaðgerð sem gerð var í Kaupmannahöfn. Og það var í kjölfar aðgerðarinnar sem fætur Guðrúnar lömuðust.
Eftir Guðrúnu liggur fjöldi ljóðabóka og auk þess birti hún ljóð í blöðum og tímaritum.
Guðrún var þekkt trúkona og er trúin áberandi í öllu sem hún skrifar og kemur þar skýrt fram að trúin hefur hjálpað henni að takast á við áföll og sorgir lífsins.