Kynjasögur # 87812

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1992
Condition
Binding
Kynjasögur. Smásögur eftir Böðvar Guðmundsson. Myndskreytingar gerði Sigurborg Stefánsdóttir.


Þegar fræðimennirnir höfðu skrifað svo mikla vitleysu um Snorra Sturluson að Guði almáttugum ofbauð heimskan í eigin sköpunarverki, þá kallaði hann Snorra til sín og sagði við hann á arameísku, en það mál þótti öðrum málum fínna á himnum síðan á dögum frelsarans: „Hefurðu lesið þvættinginn sem þeir eru að skrifa um þig?"

Snorri, sem nú var engill og hét Ipor, sem útleggst „hinn ritglaði" á fornhebresku, hann svaraði sem satt var, að það hefði hann ekki gert að neinu ráði, því að hann hafði ekki um annað hugsað í mörghundruð ár en sögu Himnaríkis sem hann var að skrifa og kallaði „Hvolf himinsins" eða „Himinhvolf".

Þá fól Guð almáttugur englinum Ipor að lesa allt sem fræðimennirnir höfðu skrifað um Snorra Sturluson fyrr og síðar.

Þó svo að engillinn Ipor væri löngu horfinn úr jarðneskum líkama og hefði iðrast margs sem Snorri Sturluson gerði, þá varð hann áður langt leið á lesturinn alveg æfur. Hégómlegur metnaður Snorra Sturlusonar, sem hafði blundað lengi og var nánast orðinn að engu, tútnaði út á ný.

„Ég verð að komast aftur til jarðar," sagði Ipor, „og stoppa þessa vitleysu. Þeir segja að ég hafi skrifað Eglu og Grettlu og ég veit ekki hvað, verið valdagírugur, slægur, rauðhærður, smávaxinn, með kartnögl á hverjum fingri og skegglaus. Ég er fjúkandi reiður."

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.