Ólafur Elímundarson # 61241

Regular
6.900 kr
Sale
6.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
2000
Condition
Binding
Kirkjur undir Jökli. Vísitasíur o.fl. að Ingjaldshóli, Hellnum, Knerri, Laugarbrekku, Einarslóni og Saxhóli 1200-1998. Ólafur Elímundarson tók saman. Gunnar Kristjánsson ritaði inngang.
Í Kirkjum undir Jökli er drepið á sögu Breiðavíkurhrepps og Neshrepps utan Ennis á Snæfellsnesi. Höfundur lýsir aðbúnaði og lífi fólks í sjö til átta aldir í gegnum samtímaheimildir sem eru skráðar vísitasíur og máldagar presta og biskupa sem hafa sótt sóknirnar yst á Snæfellsnesi heim í gegnum aldirnar.


Elstu heimildirnar eru frá 13. öld, en þær hafa varðveist í afritum frá því um 1600 og fyrri hluta 17. aldar. Kirkjustaðirnir yst á Snæfellsnesi hafa verið sex og kirkjurnar lengst af fjórar þó nú séu þær aðeins tvær.


Vísitasíurnar lýsa umhirðu kirknanna, ástandi þeirra á hverjum tíma, munum og búnaði í eigu þeirra. Síðast en ekki síst er kjörum almennings á þessum tímum lýst og aðbúnaði presta í fátækum sóknum.

Við sögu koma biskupar, fylgdarmenn þeirra, prófastar, prestar og heimamenn úr hverri sókn. Getið er helstu æviatriða fjölda manna og birtar myndir af um fimmtíu einstaklingum, allt frá Brynjólfi biskupi Sveinssyni (1605-1675). Einnig eru birtar um fimmtíu litmyndir af kirkjum og kirkjumunum á Snæfellsnesi. Sá elsti þeirra er að líkindum frá 14. eða 15. öld, en það er Maríumyndin úr Laugarbrekkukirkjugarði.


Bókin Kirkjur undir Jökli er sú fyrsta sinnar tegundar sem út kemur í landinu. Umræddar sóknir eru þar með þær fyrstu sem fá vísitasíur sínar gefnar út á bók og eru þannig öllum aðgengilegar.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.