Landeyingabók. Austur-Landeyjar # 89607
- Regular
- 9.500 kr
- Sale
- 9.500 kr
- Regular
- Unit Price
- per
Landeyingabók. Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson tók saman. Viðbætur unnu Ragnar Böðvarsson, Þorgils Jónasson og Ingólfur Sigurðsson. Ritstjóri Ragnar Böðvarsson.
Grunnurinn að Landeyingabók var lagður af Valgeiri Sigurðssyni fræðimanni á Þingskálum. Hann hafði áður samið Rangvellingabók, en það rit þotti bera af öðrum svipaðrar gerða um nákvæmni og áreiðanleika. Því var vandi á ferðum við framhald verksins þegar Valgeir féll skyndilega frá snemma árs 1971. Til starfsins réðst Ragnar Böðvarsson æskufélagi Valgeirs og hefur hann stýrt verkinu og haft veg og vanda af lokafrágangi, en honum til aðstoðar hafa verið Þorgils Jónsson sagnfræðingur og bróðir Valgeirs, Ingólfur Sigurðussoin á Þingskálum.
Í bókinni er rakin saga jarða á Austur-Landeyjum og fólksins sem þær hefur setið frá því að sögur hófust og til þessa daga. Saga eignarhalds á jörðunum er sögð og gömul og ný landamerki sráð. Getið er allra bænda og húsmæðra sem heimildir hafa fundist um, ættir þeirra og æviferill rakinn og sagt frá börnum þeirra. Lýsingar eru á mörgu fólki og myndir eru birta af um 500 manns.
Í bókinni er merki Valgeirs Sigurðssonar haldið á lofti og þess gætt svo sem kostur er að hafa það heldur er sannara reynist.
Landeyingabók er nauðsynlegt heimildarit öllum áhugamönnum um sögu byggða, persónusögu og ættfræði. (Káputexti).