Látra-Björg # 62936

Regular
4.900 kr
Sale
4.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1949
Condition
Binding
Látra-Björg. Helgi Jónsson tók saman.



Látra-Björg var kona mjög stórvaxin og ekki fríð sýnum. Hún var skapstygg og einræn; fór hún stundum með kveðlinga og hugðu menn hún væri ákvæðin og stóð af henni stuggur. Flakkaði hún stundum um sveitir og bað sér beiningar því hún var kona snauð, en ekki vildi hún ganga í vist eða vera öðrum háð. Þá var valdsmaður Jón Benediktsson í Rauðaskriðum. Hugði hann að vandlæta um háttu Látra-Bjargar; þá kvað hún:



Táli pretta illu ann,

aldrei dóma grundar;

máli réttu hallar hann,

hvergi sóma stundar.



Þessi vísuorð vóru flutt valdsmanni og varð hann reiður við og stefndi hann Látra-Björgu um kveðling þennan; en þegar málsrekstur fór fram bar hún af sér ámælið og kvað aðra hafa rangfært fyrir sér vísuorðin af illvilja og haft sig fyrir rógi. Hefði hún einmitt kveðið hana um valdsmanninn öfugt við það sem hún væri flutt eftir sér og mátti hún ekki varast að vísan væri lesin aftur á bak. Væri hún rétt höfð svona:



Stundar sóma, hvergi hann

hallar réttu máli,

grundar dóma, aldrei ann

illu pretta táli.



Og mátti valdsmaður láta svo búið standa.



Einu sinni var það að Látra-Björg skyldi eið vinna sem henni var fyrir hvern mun óljúft; þá kvað hún:



Beiði eg þann sem drýgir dáð

og deyð á hörðum krossi leið

að sneyða þann frá nægð og náð

er neyðir mig um sjöttareið.



Og eftir það var hún ekki neydd um eiðinn því valdsmanni stóð geigur af ákvæðaorðum hennar og þókti hann þó fylgja sér fast að málum við menn eins og sagan segir líka að hann hafi hitt sjálfan sig fyrir, því þegar hann eitt sinn dæmdi hart einhvern vesælan fyrir litlar sakir þá kvað hinn aumi (segja sumir að það væri Látra-Björg):


Dómari Jón, þú dæmir mig,

dómurinn þinn er skæður;

dómarinn sá mun dæma þig

sem dómunum öllum ræður.



Tók þá Jón hina löngu og ströngu sótt sem leiddi hann til bana og gaf þó jörðina Kotamýrar fátækum í Reykjadal að hann fengi að leysast héðan.


Það er mælt að Látra-Björg hafi verið kraftaskáld og er það haft til marks að eitt sinn er sigling hafði lengi dregizt kvað hún þetta:



Vaxi mugga og vindurinn,

vil ég brugga ljóða slag,

sigli dugga ein hér inn

oss að hugga nú í dag.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.