Laxaveislan mikla # 83609

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1992
Condition
Binding
Laxaveislan mikla... og þjóðin borgar brúsann. En ber enginn ábyrgð? Eftir Halldór Halldórsson.
Í bókinni heldur höfundur því fram að óðagot, skortur á rannsóknum og þekkingarleysi fiskeldismanna ásamt misnotkun valds og aðstöðu af hálfu stjórnmála- og embættismanna eigi verulega sök á því að þjóðin hafi glatað 10-11 milljörðum króna á fiskeldisævintýrinu. Í bókinni kemur fram að gera megi ráð fyrir að 40-50 fiskeldisfyrirtæki hafi orðið gjaldþrota og tveir til þrír tugir fyrirtækja hætt rekstri. Tjónið vegna þessa þurfi þjóðin nú að borga.


Bókarhöfundur segir í inngangsorðum: "Saman fór göslaraháttur og ótrúlegt þekkingarleysi á fiskeldinu. Milljörðum króna var mokað út í framkvæmdir og fyrirtæki, sem voru vonlaus frá byrjun. Ekkert var hirt um alvarlegar aðvaranir framsýnna manna, og ekkert skeytt um um það, að byggja ákvarðanirnar á reynslu og vísindalegri þekkingu. Milljarðaframkvæmdir eins og Íslandslax var della frá grunni. Að lokum var reynt að fela hneykslin, þegja yfir svörtum skýrslum og hefta upplýsingar.


Þar við bætist svo pólitísk spilling út frá stjórnmálamönnum, sem sátu í stjórnum sjóða, hygluðu sínum mönnum og héldu jafnvel áfram að moka hundraða milljónum í vini og fylgismenn, þó fyrirtækin væru þegar orðin gjaldþrota."

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.