Leiðarvísur um orðasöfnun # 84638

Regular
9.500 kr
Sale
9.500 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
1922
Condition
Binding
Leiðarvísur um orðasöfnun eftir Þórberg Þórðarson.


Um orðasöfnun sína segir Þórbergur frá í Bréfi til Láru. Þar er meðal annars þetta en þá hafði fjárveitinganefnd Alþingis synjað honun styrks til áframhaldandi söfnunar.



Ég er einn af þessum fáu, brjóstumkennanlegu hugsjónaglópum, sem íhaldið talar um
með hlæjandi fyrirlitningu. Orðasöfnunin var mér hugsjónamál. Og ég er svo
undarlega af guði gerður, að ég er í meira samræmi við mitt insta eðli, þegar ég vinn
óeigingjarnt að nýtri hugsjón, heldur en ef ég færi að strita hugsjónalaust fyrir auði og
áliti til þess að drepa hugsjónir meðbræðra minna. " En hvaða ástæða skyldi hafa verið
gefin fyrir því að Þórbergur var sviptur styrknum? Það skýrir Þórbergur á þennan
hátt: ,,Skömmu eftir að ég frétti afdrif orðasöfnunarinnar hjá fjárveitinganefnd, átti ég
af tilviljun tal við einn úr meiri hluta nefndarinnar. Ég spurði hann, hvort það væri
satt, er ég hafði heyrt, að nefndin hefði ekki tekið það neitt til greina, sem ég sagði við
hana. Hann kvað það satt vera. ,,Ráðstöfuðuð þið þá ekki orðasöfnuninni á neinn
annan hátt? " Nei. Þeir höfðu ekki haft sinnu á að gera það. ,,Er það þá í raun og veru
meining ykkar að kasta frá ykkur ókeypis aðstoð fjölda manna og ónýta alt þetta mikla
verk mitt, sem komið er þó nokkuð á leið? " En þingmaðurinn svaraði, og þá kom nú
vitið og vizkan: ,,Við lítum svo á, að til orðasöfnunarinnar megi verja einhverju af
styrknum, sem veittur er til orðabókar Sigfúsar Blöndals. ",, Hafið þið þá gert nokkrar
ráðstafanir til þess? " Þögn. ,,Var orðabókar-styrkur Sigfúsar Blöndals veittur meðfram
til þess að safna úr alþýðumáli? " ,,Ja, hann var veittur til þess að safna íslenzkum
orðum. "
,,Íslenskum orðum!! Þér ljúgið. Hann var ekki veittur til að safna íslenzkum orðum.
Hann var aðeins veittur til útgáfu bókarinnar. Og það er heimildarlaust að verja honum til annars. " ,,En ríkissjóður er illa staddur, og við verðum að spara. "

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.