Lestrarbók handa alþýðu á Íslandi # 45077

Regular
39,500 kr
Sale
39,500 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Kaupmannahöfn
Date
1874
Condition
Binding
Lestrarbók handa alþýðu á Íslandi eptir Þórarinn Böðvarsson.

Lestrarbók handa Alþýðu á Íslandi í samantekt Þórarins Böðvarssona í Görðum á Álftanesi var yfirleitt nefnd Alþýðubókin. Bókin er lítt þekkt í dag en hún hafði gríðarleg áhrif þegar hún kom út og sagt hefur verið að hún hafi verið “lesin upp til agna”. Alþýðubókinni var ætlað að uppfræða almenning um ýmis mál enda segir höfundur í formála sínum að það sé “tilgangur slíkra bóka … að þar sje safnað á einn stað hinu helzta er þykir hæfa að vita”. Vinsældir bókarinnar urðu slíkar að hún henni hefur verið lýst sem “allsherjar skóla íslenskrar alþýðu á síðasta fjórðungi 19. aldar”. Áður höfðu Íslendingar einkum lesið P.Hjorts Danske Börneven, en nú var þeim aðgengileg lestrarbók á íslensku að því leyti var útgáfa bókarinnar ómetanleg.
Bókin skiptist í fimm kafla en hver kafli greinist svo í fjölmarga undirkafla. Leskaflar eru ætíð stuttir og því verður lesturinn ekki lengdreginn. Efni bókarinnar er úr öllum áttum: Um jörðina og íbúa hennar, dýraríkið, jurtaríkið, steinaríkið, efnafræði, tímatal og líffæri mannsins, mannkynssaga, Íslandssaga og stjórnspeki, dæmisögur, smásögur og heilræði, málshættir og kvæði og heilbrigði og trú svo fátt eitt sé nefnt. Bókin er einnig skreytt myndum, einkum þar sem rætt er um dýraríkið.
Lestrarbók Þórarins Böðvarssonar er tvímælalaust ein sú áhugaverðasta bók sem gefin var út á íslensku á 19. öld. Síðan bókin kom út hefur vísindunum fleygt áfram og ef til vill er ekki allt nákvæmt sem segir um efnafræði og önnur skyld efni. En annað hefur staðist tímans tönn, svo sem stuttir kaflar úr mannkynssögunni, dæmisögur og þær tæplega 50 gátur sem í bókinni eru, en á þeim má enn spreyta sig og hafa gaman að. Þá er bókin einnig skrifuð á fallegu og góðu máli og margt má af Þórarni læra um góðan stíl.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.