Lifandi vitund # 55113

Regular
1,900 kr
Sale
1,900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Hveragerði
Date
2019
Condition
Binding
Lifandi vitund. Predikanir, ávörp og greinar eftir Sigurgeir Sigurðsson, Pétur Sigurgeirsson og Pétur Pétursson. Kristján Valur Ingólfsson ritar inngangsorð.
Gefið út í minningu Péturs Sigurgeirssonar.
Hér mætast þrjár kynslóðir kennimanna í sömu fjölskyldu og miðla af kristnum boðskap sínum, trú og lífsskoðunum. Á einstæðan hátt vitnar þessi bók um sviptingar tímans og ólíkan tíðaranda því að rúm öld er nú liðin síðan Sigurgeir Sigurðsson, prestur á Ísafirði og síðar biskup Íslands, hóf að predika, og enn starfar sonarsonur hans, Pétur Pétursson, að málefnum trúar og kirkju við Háskóla Íslands.

Pétur Sigurgeirsson, prestur á Akureyri og síðar biskup Íslands, er í miðju þessarar bókar og minningu hans er hún helguð. Til að minnast aldarafmælis hans, 2. júní 2019, birtist hér úrval predikana, pistla og blaðagreina frá hans hendi sem varpa skýru ljósi á afstöðu hans til samfélags og trúar. Um leið má í bókinni lesa og álykta eitt og annað um samtal þeirra þriggja kynslóða sem hér hafa orðið, enda margt líkt með skyldum.


Þessi bók vitnar ekki aðeins um kristna boðun, hún er ekki síður til marks um sögu Íslands, menningu og siði þjóðarinnar, séð af sjónarhóli guðfræði, trúarlífs og samvisku á hverri tíð.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.