Ljóð í mæltu máli # 51826
- Regular
- 4,900 kr
- Sale
- 4,900 kr
- Regular
Sold Out
- Unit Price
- per
Ljóð í mæltu máli. Ljóð eftir Jacques Prévert. Sigurður Pálsson þýddi.
Söngur fangavarðarins
Hvert ertu að fara snotri fangavörður
Með þennann lykill blóði drifinn
Ég ætla að leysa úr haldi
Hana sem ég elska
Ef það er ekki of seint
Hana sem ég lokaði inni
Blíðlega grimmilega
Í leyndustu fylgsnum ástríðu minnar og þrár
Í kvalræðisdjúpinu
Í fíflsku heitstrenginga
Ég ætla að sleppa henni úr haldi
Ég vil að hún sé frjáls
Og gleymi mér jafnvel
Og fari jafnvel burt
Og komi jafnvel aftur
Og elski mig aftur
Eða elski einhvern annan
Og ef ég verð einn
Og hún farin
Þá er það eina
Það eina sem ég mun alltaf eiga
Í báðum skálum lófanna
Til minningar um hinstu stund
Mildi brjósta hennar sem mótuð eru af ást.
Söngur fangavarðarins
Hvert ertu að fara snotri fangavörður
Með þennann lykill blóði drifinn
Ég ætla að leysa úr haldi
Hana sem ég elska
Ef það er ekki of seint
Hana sem ég lokaði inni
Blíðlega grimmilega
Í leyndustu fylgsnum ástríðu minnar og þrár
Í kvalræðisdjúpinu
Í fíflsku heitstrenginga
Ég ætla að sleppa henni úr haldi
Ég vil að hún sé frjáls
Og gleymi mér jafnvel
Og fari jafnvel burt
Og komi jafnvel aftur
Og elski mig aftur
Eða elski einhvern annan
Og ef ég verð einn
Og hún farin
Þá er það eina
Það eina sem ég mun alltaf eiga
Í báðum skálum lófanna
Til minningar um hinstu stund
Mildi brjósta hennar sem mótuð eru af ást.