Ljóð Ásgríms Kristinssonar frá Ásbrekku # 36535

Regular
2.900 kr
Sale
2.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Hella
Date
1981
Condition
Binding
Ljóð Ásgríms Kristinssonar frá Ásbrekku.
Þetta er fyrsta og eina bók Ásgríms frá Ásbrekku.
Ásgrímur fæddist að Ási í Vatnsdal 29. desember 1911. Foreldrar hans voru: Ingibjörg Benediktsdóttir og Kristinn Bjarnason. Þau bjuggu aldrei saman og var Ásgrímur alinn upp hjá ömmubróður sínum, Guðmundi Ólafssyni alþingismanni í Ási, og konu hans, Sigurlaugu Guðmundsdóttur.

Um tvítugt kvæntist Ásgrímur Ólöfu K. Sigurbjörnsdóttur, ættaðri úr Dölum, og áttu þau saman fjögur börn. Nýgift tóku þau hjón á leigu jörðina Kötlustaði í Vatnsdal og bjuggu þar í nokkur ár. En árið 1936 stofnuðu þau nýbýlið Ásbrekku í Vatnsdal á einum fimmta hluta jarðarinnar Áss. Vorið 1946 drukknaði Ólöf í Vatnsdalsá í miklum vorleysingum. Þetta varð mikið áfall fyrir Ásgrím og börnin.

Nokkru síðar kom Guðný Guðmundsdóttir, ættuð af Vestfjörðum, til hans sem ráðskona með ungan son sinn. Þau giftust og börnunum fjölgaði. Þau bjuggu á Ásbrekku til 1954 en þá brugðu þau búi og fluttust til Akraness. Eftir tveggja ára dvöl þar fluttu þau aftur að Ásbrekku og bjuggu þar til 1962. Þá fluttu þau til Reykjavíkur og starfaði Ásgrímur þar um hríð hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga. Hann andaðist 20. ágúst 1988.
(Heimildir: Húnvetningaljóð, Akureyri 1955 og Grímur Gíslason: Ásgrímur Kristinsson frá Ásbrekku í Vatnsdal. Tíminn 30. ágúst 1988).

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.